Flyttu núverandi LEI

ÓKEYPIS
 
 

Skráðu nýtt LEI

€65 /ári *
Skráning LEI-númers með hraði: + €40
* LEI-skráning, 5 ár

Endurnýja LEI

€60 /ári *
LEI-endurnýjun með hraði: + €40
* LEI-endurnýjun, 5 ár
115000 viðskiptavinir síðan 2014.

Skráðu þig hér

Leita að LEI

Um LEI

Hvað er LEI?

LEI er skammstöfun á Legal Entity Identifier (auðkenni lögaðila) og er 20 stafa kóði sem inniheldur bæði bók- og tölustafi. Allir LEI-kóðar eru birtir opinberlega og skráðir í alþjóðlegu LEI-skrána sem stjórnað er af Global Legal Entity Identifier Foundation (GLEIF). Hver LEI-kóði er einkvæmur fyrir hvern lögaðila og LEI-kóðar eru notaðir til að auðkenna lögaðila sem eiga í fjármálaviðskiptum á skýran hátt. Hver LEI-kóði inniheldur upplýsingar um uppbyggingu eignarhalds. LEI-kóðar eru notaðir um allan heim og tilgangur þeirra er að auðkenna lögaðila og tryggja öryggi verðbréfaviðskipta.

Hvaða aðilar þurfa á LEI að halda?

Frá og með janúar 2018 ber öllum lögaðilum sem stunda viðskipti með verðbréf og afleiður í ESB að afla sér LEI-kóða. Lögaðilum sem ber skylda til að afla sér LEI-kóða er lýst nánar í regluverki ISO 17442, sem hægt er að skilgreina í stuttu máli sem lögaðila sem leggja stund á fjármálaviðskipti. Ennfremur kemur fram í ISO 17442 að lögaðilar sem leggja stund á tiltekin fjármálaviðskipti sem ekki krefjast skráningar LEI-kóða er samt sem áður frjálst að gera slíkt. Verðbréfamiðlarar og aðrar fjármálastofnanir kunna að hafa innri reglur sem krefjast LEI-kóða til að nota þjónustu viðkomandi. NordLEI mælir með að hafa samband við innlendan banka eða fjármálaeftirlit ef vafi leikur á hvort lögaðili þurfi að skrá LEI-kóða.

Af hverju ættir þú að nota NordLEI?

  • Sænskt fyrirtæki sem hefur aðstoðað yfir 100.000 viðskiptavini frá árinu 2014 og er leiðandi afl innan LEI-kerfisins.
  • Fyrirtækið hefur sett upp traust verkferli og staðbundna gagnaþjóna í Svíþjóð og býður því örugga geymslu gagna og örugga útgáfu LEI-kóða.
  • Fyrsti rekstraraðilinn (e. LOU - Local Operating Unit) sem var viðurkenndur af GLEIF-stofnuninni (Global Legal Entity Identifier Foundation) í Skandinavíu þann 22. september 2021.
  • Veitir þjónustu sem rekstraraðili í 8 lögsagnarumdæmum: Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Bretlandi, Írlandi og Hollandi. NordLEI veitir þjónustu fyrir LEI í Bretlandi undir merkjum UKLEI.
  • Opinber skráningaraðili fyrir öll önnur lönd undir merkjum EuroLEI.
  • Löggiltur í upplýsingaöryggi samkvæmt ISO 27001.